Stærð námskeiðs í einingum 5 (10 ects) þar af 2 einingar í vettvangsnámi
Hámarksfjöldi nemenda
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Markmið: Í lok námskeiðs hafi nemendur
Þekkingarmarkmið og skilningsmarkmið:
Þekkingu á notkun upplýsingatækni á vettvangi skólastarfs á því skólastigi sem þeir sérhæfa sig
Þekkingu á hvernig nemendur á þeim aldri sem þeirra sérhæfing tekur til nota upplýsingatækni heima og í frístundum
Þekkingu á hvaða verkfæri eru notuð til náms og kennslu og möguleikum sem í þeim felast.
Þekkingu byggða á fræðilegum grunni (rannsóknum) á möguleikum upplýsingatækni til að efla nám og kennslu
Þekki til íslenskra sem erlendra rannsókna á sviðinu
Skilning á hvernig skólinn getur tekið mið af reynslu og þekkingu nemenda við skipulagningu náms og kennslu með upplýsingatækni.
Skilning á hvaða þættir í skólanum sem stofnun skipta máli til að möguleikar upplýsingatækni skili árangri í námi
>
Færnimarkmið:
Hæfni til að taka þátt í þróunarstarfi í skólum þar sem upplýsingatækni er nýtt sem tæki til að efla nám og kennslu
Hæfni til að taka þátt í gagnrýninni umræðu um upplýsingatækni í skólanámi byggða á þekkingu á vettvangi og fræðikenningum.
Hæfni til að nýta upplýsingatækni í almennri bekkjarkennslu eða leikskóla og/eða faggreinakennslu
Hæfni til að gera athuganir á notkun upplýsingatækni meðal barna, unglinga eða fullorðinna (Nemenda) í skóla og utan skóla
Hæfni til að lesa fræðilegar greinar og fylgjast þannig með þróun rannsókna á sviði upplýsingatækni til náms og kennslu.
> Inntak / viðfangsefni
Athygli beinist að þremur meginþáttum og samspili þeirra, þ.e. nemandanum, skólanum sem stofnun og upplýsingatækni sem verkfæri við nám og kennslu. Viðfangsefni nemenda verður að afla sér þekkingar jöfnum höndum á starfsvettvangi og með lestri fræðilegra greina sem byggja á rannsóknum á sviði upplýsingatækni til náms og kennslu.
Vinnulag
Við söfnun gagna á vettvangi verður lögð áhersla á að nemendur noti viðurkennda aðferðafræði sem og í greiningu þeirra gagna, túlkun og framsetningu. Áhersla verður lögð á að tengja niðurstöður af vettvangi við fræðilega umræðu. Ný þekking verður lögð fram á neti þar sem hún er aðgengileg fyrir námshópinn og grundvöllur gagnrýninnar umræðu. Hópurinn leggur mat á hvaða framlög eiga erindi við skólasamfélagið á Íslandi og lögð verður áhersla á að birta þau á Netinu.
Námsmat
Nemendur venjast við að nota viðmið til að meta gæði verkefna og taka þátt í umræðu sem hluta af jafningjamati.
Braut / námsleið / kjörsvið
Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Misseri
Stærð námskeiðs í einingum 5 (10 ects) þar af 2 einingar í vettvangsnámi
Hámarksfjöldi nemenda
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Markmið: Í lok námskeiðs hafi nemendur
Þekkingarmarkmið og skilningsmarkmið:
- Þekkingu á notkun upplýsingatækni á vettvangi skólastarfs á því skólastigi sem þeir sérhæfa sig
- Þekkingu á hvernig nemendur á þeim aldri sem þeirra sérhæfing tekur til nota upplýsingatækni heima og í frístundum
- Þekkingu á hvaða verkfæri eru notuð til náms og kennslu og möguleikum sem í þeim felast.
- Þekkingu byggða á fræðilegum grunni (rannsóknum) á möguleikum upplýsingatækni til að efla nám og kennslu
- Þekki til íslenskra sem erlendra rannsókna á sviðinu
- Skilning á hvernig skólinn getur tekið mið af reynslu og þekkingu nemenda við skipulagningu náms og kennslu með upplýsingatækni.
- Skilning á hvaða þættir í skólanum sem stofnun skipta máli til að möguleikar upplýsingatækni skili árangri í námi
>Færnimarkmið:
- Hæfni til að taka þátt í þróunarstarfi í skólum þar sem upplýsingatækni er nýtt sem tæki til að efla nám og kennslu
- Hæfni til að taka þátt í gagnrýninni umræðu um upplýsingatækni í skólanámi byggða á þekkingu á vettvangi og fræðikenningum.
- Hæfni til að nýta upplýsingatækni í almennri bekkjarkennslu eða leikskóla og/eða faggreinakennslu
- Hæfni til að gera athuganir á notkun upplýsingatækni meðal barna, unglinga eða fullorðinna (Nemenda) í skóla og utan skóla
- Hæfni til að lesa fræðilegar greinar og fylgjast þannig með þróun rannsókna á sviði upplýsingatækni til náms og kennslu.
>Inntak / viðfangsefni
Athygli beinist að þremur meginþáttum og samspili þeirra, þ.e. nemandanum, skólanum sem stofnun og upplýsingatækni sem verkfæri við nám og kennslu. Viðfangsefni nemenda verður að afla sér þekkingar jöfnum höndum á starfsvettvangi og með lestri fræðilegra greina sem byggja á rannsóknum á sviði upplýsingatækni til náms og kennslu.
Vinnulag
Við söfnun gagna á vettvangi verður lögð áhersla á að nemendur noti viðurkennda aðferðafræði sem og í greiningu þeirra gagna, túlkun og framsetningu. Áhersla verður lögð á að tengja niðurstöður af vettvangi við fræðilega umræðu. Ný þekking verður lögð fram á neti þar sem hún er aðgengileg fyrir námshópinn og grundvöllur gagnrýninnar umræðu. Hópurinn leggur mat á hvaða framlög eiga erindi við skólasamfélagið á Íslandi og lögð verður áhersla á að birta þau á Netinu.
Námsmat
Nemendur venjast við að nota viðmið til að meta gæði verkefna og taka þátt í umræðu sem hluta af jafningjamati.
Lesefni [Ef hægt er.]
Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.